30.12.2022

Lífeyris­greiðsl­ur og rétt­indi sjóð­félaga hækka

Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur staðfest breytingar á samþykktum EFÍA sem kynntar voru á ársfundi sjóðsins 20. maí 2022 og sjóðfélagar kusu í framhaldinu um í rafrænu kjöri. Megininntak breytinganna er aðlögun að nýjum lífslíkutöflum í tryggingafræðilegu mati og aukning áunnina réttinda allra sjóðfélaga um 16% m.v 31.12.2021.

Hækkun áunninna réttinda um 16% hjá öllum sjóðfélögum kemur til vegna góðrar afkomu sjóðsins síðustu ár en á móti voru teknar upp nýjar spár um lífslíkur sem auka skuldbindingar sjóðsins, mismikið eftir árgöngum. Hækkun hvers árgangs að teknu tilliti til nýrra spátaflna má sjá í töflum í kafla VI, bls. 30 í samþykktum sjóðsins.

Sjóðfélagar sem hafið hafa töku lífeyris munu sjá hækkun greiðslna við næstu útborgun, ásamt uppsafnaðri hækkun frá og með útborgun 1. ágúst 2022.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
6. október 2026

Breytt verklag við ákvörðun vaxta sjóðfélagalána

Stjórn EFÍA samþykkti á fundi sínum 4. október 2026 breytingar á verklagi við ákvörðun vaxta sjóðfélagalána. Markmið breytinganna er að gera vaxtaákvarðanir fyrirsjáanlegri og tryggja skýrari upplýsingagjöf til lántaka.

Lesa meira
6. október 2026

Breyting á vöxtum sjóðfélagalána

Stjórn EFÍA tók ákvörðun um að hækka breytilega verðtryggða vexti sjóðsins.

Lesa meira
7. júlí 2026

Breytingar á framkvæmdastjórn og stjórn EFÍA

Breytingar hafa orðið á framkvæmdastjórn og stjórn EFÍA.

Lesa meira