28.05.2015
Kynningarfundur um samþykktarbreytingar mánudaginn 1. júní kl. 11.30
Haldinn verður kynningafundur nk. mánudag, 1. júní, kl 11:30 á tillögum stjórnar um breytingar á samþykktum EFÍA, sem ræddar voru á ársfundi sjóðsins. Fundurinn verður haldinn í húsakynnum FÍA, Hlíðasmára 8.
Tillögurnar snúa aðallega að breytingum á maka- og barnalífeyri. Helstu ástæður stjórnar fyrir þessum tillögum eru breytingar sem átt hafa sér stað í kjaramálum og þátttöku á vinnumarkaði frá því að greinar maka- og barnalífeyris í núverandi samþykktum voru samþykktar. Helstu ástæður eru:
Breytingar á vinnumarkaði, makar meira útivinnandi
Heimilt að skipta réttindum milli sjóðfélaga og maka
Heimilt að færa réttindi í séreign
Kjarasamningsbundnar tryggingar hækkað verulega
Skírteinistrygging
Líftrygging
Rétt er að minna á að öll áunnin réttindi halda sér og eru samkvæmt núverandi samþykktum, þ.e.a.s. makalífeyrir er ævilangur. Allir makar og börn sem nú eru á lífeyrisgreiðslum halda þeim áfram.
Makar núverandi sjóðfélaga halda öllum áunnum réttindum sínum. Þetta eru einungis tillögur að breytingum á framtíðarréttindum.
Tillögurnar er hægt að nálgast hér á heimasíðu sjóðsins, undir frétt "Ársfundur Eftirlaunasjóðs FÍA" frá 01. apríl 2015.
Sjóðfélagar eru hvattir til að mæta og kynna sér breytingarnar.