14.02.2019

Kosning um sam­þykkta­breyt­ingar haf­in - stendur í viku

Á aukaársfundi EFÍA, sem fór fram í dag 14. febrúar kl. 12:00, lagði stjórn sjóðsins fram tillögur um breytingar á samþykktum sjóðsins. Í tillögum til breytinga á samþykktum eru lagðar til breytingar á fyrirkomulagi í tengslum við stjórn EFÍA. Er meðal annars lögð til sú breyting að fulltrúar FÍA í stjórn EFÍA verði kosnir af sjóðfélögum í beinni kosningu. Allar breytingatillögur snúa að stjórnarkjöri, tilhögun þess, skipun kjörnefndar og tilhögun ársfundar.

Samkvæmt samþykktum sjóðsins skal fara fram allsherjaratkvæðagreiðsla sjóðfélaga um samþykktarbreytingar og hefur nú verið opnað fyrir rafræna kosningu.

Kosning

Opnað hefur verið fyrir kosningu og mun hún standa í eina viku, þ.e. frá 14. febrúar kl. 13:00 til 21. febrúar kl. 13:00.

Til að greiða atkvæði í kosningunni þarf að fara inn á eftirfarandi vefslóð á heimasíðu EFÍA.

Gætt verður fyllsta trúnaðar við framkvæmd kosninganna og verða svör ekki rekjanleg til einstakra sjóðfélaga.

Ef einhverjar spurningar vakna eða ef óskað er eftir aðstoð við kosninguna má hafa samband við Hjört Smára Vestfjörð í síma 444 7758. Einnig má hafa samband í þjónustusíma sjóðfélaga 444 8960 eða senda póst á efia@arionbanki.is. Stjórn sjóðsins veitir einnig fúslega upplýsingar.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
6. október 2026

Breytt verklag við ákvörðun vaxta sjóðfélagalána

Stjórn EFÍA samþykkti á fundi sínum 4. október 2026 breytingar á verklagi við ákvörðun vaxta sjóðfélagalána. Markmið breytinganna er að gera vaxtaákvarðanir fyrirsjáanlegri og tryggja skýrari upplýsingagjöf til lántaka.

Lesa meira
6. október 2026

Breyting á vöxtum sjóðfélagalána

Stjórn EFÍA tók ákvörðun um að hækka breytilega verðtryggða vexti sjóðsins.

Lesa meira
7. júlí 2026

Breytingar á framkvæmdastjórn og stjórn EFÍA

Breytingar hafa orðið á framkvæmdastjórn og stjórn EFÍA.

Lesa meira