04.06.2021

Kosning um sam­þykkta­breyt­ingar haf­in - stendur í viku

Á ársfundi EFÍA, sem fór fram í gær 3. júní kl. 13:00, lagði stjórn sjóðsins fram tillögur um breytingar á samþykktum sjóðsins. Breytingarnar snúa að 4., 5. og 15. grein samþykkta sjóðsins. Megininntak breytinga á 4. gr. snúa að umboði og sjálfstæði stjórnarmanna. Þá er í 5. gr. lagðar til breytingar er snúa að ársfundi sjóðsins, atkvæði sjóðfélaga á fundinum sem og kjöri endurskoðanda. Að lokum er skerpt á orðalagi er snýr að skiptingu réttinda í 15. gr. samþykkta sjóðsins.

Samkvæmt samþykktum sjóðsins skal fara fram allsherjaratkvæðagreiðsla sjóðfélaga um samþykktabreytingar og hefur nú verið opnað fyrir rafræna kosningu.

Kosning

Opnað hefur verið fyrir kosningu og mun hún standa í eina viku, þ.e. frá 4. júní kl. 14.00 til 11. júní kl. 14:00.

Til að greiða atkvæði í kosningunni þarf að fara inn á eftirfarandi vefslóð á heimasíðu EFÍA. En þar má nálgast upplýsingar um samþykktabreytingarnar og skrá sig inn í rafrænan kjörklefa.

Gætt verður fyllsta trúnaðar við framkvæmd kosninganna og verða svör ekki rekjanleg til einstakra sjóðfélaga.

Ef einhverjar spurningar vakna eða ef óskað er eftir aðstoð við kosninguna má hafa samband við Hjört Smára Vestfjörð í síma 444 7758. Einnig má hafa samband í þjónustusíma sjóðfélaga 444 8960 eða senda póst á efia@arionbanki.is. Stjórn sjóðsins veitir einnig fúslega upplýsingar.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
6. október 2026

Breytt verklag við ákvörðun vaxta sjóðfélagalána

Stjórn EFÍA samþykkti á fundi sínum 4. október 2026 breytingar á verklagi við ákvörðun vaxta sjóðfélagalána. Markmið breytinganna er að gera vaxtaákvarðanir fyrirsjáanlegri og tryggja skýrari upplýsingagjöf til lántaka.

Lesa meira
6. október 2026

Breyting á vöxtum sjóðfélagalána

Stjórn EFÍA tók ákvörðun um að hækka breytilega verðtryggða vexti sjóðsins.

Lesa meira
7. júlí 2026

Breytingar á framkvæmdastjórn og stjórn EFÍA

Breytingar hafa orðið á framkvæmdastjórn og stjórn EFÍA.

Lesa meira