29.12.2017

Keypt­ir þú fyrstu íbúð eft­ir 1. júlí 2014?

Vakin er athygli á því að þeir sem keyptu sína fyrstu íbúð frá 1. júlí 2014 til og með 30. júní 2017 ættu, að vissum skilyrðum uppfylltum, að eiga rétt á að sækja um úrræðið „fyrstu íbúð“ sem tók gildi þann 1. júlí 2017, jafnvel þótt viðkomandi hafi þegar nýtt sér skattfrjálsar útgreiðslur viðbótarlífeyrissparnaðar til húsnæðissparnaðar eða til að greiða inn á lán.

Þeir sem keyptu á tímabilinu 1. júlí 2014 til og með 30. júní 2017 og vilja byrja í eða færa sig yfir í „fyrstu íbúðar“ úrræðið, þurfa að sækja um fyrir lok árs 2017.

Þeir sem kaupa fyrstu íbúð eftir 30. júní 2017 hafa hins vegar 12 mánuði frá kaupum til að sækja um úrræði „fyrstu íbúð“.

Nánari upplýsingar má nálgast inn á www.arionbanki.is/einstaklingar/lifeyrissparnadur/leidrettingin og á vef RSK (www.rsk.is/einstaklingar/eignir-og-skuldir/fyrsta-ibud) en sótt er um rafrænt í gegnum þjónustuvef RSK.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
6. október 2026

Breytt verklag við ákvörðun vaxta sjóðfélagalána

Stjórn EFÍA samþykkti á fundi sínum 4. október 2026 breytingar á verklagi við ákvörðun vaxta sjóðfélagalána. Markmið breytinganna er að gera vaxtaákvarðanir fyrirsjáanlegri og tryggja skýrari upplýsingagjöf til lántaka.

Lesa meira
6. október 2026

Breyting á vöxtum sjóðfélagalána

Stjórn EFÍA tók ákvörðun um að hækka breytilega verðtryggða vexti sjóðsins.

Lesa meira
7. júlí 2026

Breytingar á framkvæmdastjórn og stjórn EFÍA

Breytingar hafa orðið á framkvæmdastjórn og stjórn EFÍA.

Lesa meira