26.06.2025
Hámarkslán hjá EFÍA hækkar
Stjórn EFÍA hefur uppfært lánareglur sjóðsins. Hámarkslánveiting hefur verið 80 milljónir kr. en verður nú 90 milljónir kr. Breytingin tekur þegar gildi.
EFÍA býður upp á þrjú lánsform eða blöndu af þeim:
Verðtryggð lán með vöxtum sem eru breytilegir, 4,80%.
Verðtryggð lán með föstum vöxtum til fimm ára í senn, 4,50%.
Óverðtryggð lán með föstum vöxtum til þriggja ára í senn, 8,45%.
Eins og áður segir er hámarkslán nú 90 milljónir kr. og lánstími er 5 til 40 ár.