30.12.2022

Hækkun lágmarks­ið­gjalds úr 12,2% í 12,4%

Stjórn EFÍA hefur ákveðið, í samráði við tryggingastærðfræðing sjóðsins, að hækka lágmarksiðgjald til samtryggingar úr 12,2% í 12,4%. Er þetta gert til að mæta áætlunum um framtíðar réttindaávinnslu næstu ára.

Sjóðfélögum gefst kostur á að greiða hluta af heildariðgjaldi sínu til öflunar séreignar og stendur valið því nú milli þess að greiða 4% í séreign eða 7,6%. Þeir sjóðfélagar sem hafa hingað til greitt 12,2% til EFÍA og 7,8% í séreignarsjóð að eigin vali munu frá og með áramótum geta greitt 7,6% í séreignarsjóð.

Launagreiðendur verða einnig upplýstir um þessar breytingar.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
6. október 2026

Breytt verklag við ákvörðun vaxta sjóðfélagalána

Stjórn EFÍA samþykkti á fundi sínum 4. október 2026 breytingar á verklagi við ákvörðun vaxta sjóðfélagalána. Markmið breytinganna er að gera vaxtaákvarðanir fyrirsjáanlegri og tryggja skýrari upplýsingagjöf til lántaka.

Lesa meira
6. október 2026

Breyting á vöxtum sjóðfélagalána

Stjórn EFÍA tók ákvörðun um að hækka breytilega verðtryggða vexti sjóðsins.

Lesa meira
7. júlí 2026

Breytingar á framkvæmdastjórn og stjórn EFÍA

Breytingar hafa orðið á framkvæmdastjórn og stjórn EFÍA.

Lesa meira