24.01.2017

Greiðslu­mat á að­eins ör­fá­um mín­út­um

Nú býðst sjóðfélögum EFÍA að nýta sér nýja og einfalda leið fyrir einstaklinga til að fá greiðslumat á aðeins nokkrum mínútum. Á vef Arion banka, arionbanki.is, geta nú allir þeir sem eiga rafræn skilríki fengið sjálfvirkt greiðslumat á örskotsstundu. Þeir sem standast greiðslumatið þurfa því ekki að gera fyrirvara um greiðslumat þegar kauptilboð er lagt fram.

Með nýju greiðslumati Arion banka þurfa sjóðfélagar EFÍA ekki að safna saman launaseðlum, skattframtali og öðrum fylgiskjölum. Bankinn sér einfaldlega um að afla þessara upplýsinga rafrænt frá Creditinfo og RSK. Gagnaöflun og uppflettingar bankans byggjast á rafrænu samþykki umsækjenda.

Samhliða þessari breytingu mun kostnaður vegna greiðslumats lækka umtalsvert. Arion banki mun ekki innheimta sérstakt greiðslumatsgjald en umsækjendur þurfa að greiða þann kostnað sem til fellur vegna uppflettinga hjá þriðja aðila, m.a. í skuldastöðukerfi og ökutækjaskrá. Sá kostnaður er 3.200 kr. fyrir einstakling og 5.500 kr. fyrir hjón eða fólk í sambúð.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
6. október 2026

Breytt verklag við ákvörðun vaxta sjóðfélagalána

Stjórn EFÍA samþykkti á fundi sínum 4. október 2026 breytingar á verklagi við ákvörðun vaxta sjóðfélagalána. Markmið breytinganna er að gera vaxtaákvarðanir fyrirsjáanlegri og tryggja skýrari upplýsingagjöf til lántaka.

Lesa meira
6. október 2026

Breyting á vöxtum sjóðfélagalána

Stjórn EFÍA tók ákvörðun um að hækka breytilega verðtryggða vexti sjóðsins.

Lesa meira
7. júlí 2026

Breytingar á framkvæmdastjórn og stjórn EFÍA

Breytingar hafa orðið á framkvæmdastjórn og stjórn EFÍA.

Lesa meira