30.05.2017

Fram­lenging á ráð­stöf­un sér­eignar­sparnaðar inn á höfuð­stól láns

Þeir sjóðfélagar sem hafa nýtt sér úrræðið um ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á höfuðstól láns, sem gilda átti til 30. júní 2017 geta nú sótt um framlengingu á því til júní loka 2019. Þeir sem hafa áhuga á því að nýta sér úrræðið áfram þurfa að skrá sig inn á vef Ríkisskattstjóra, www.leidretting.is og staðfesta afstöðu sína. Ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á höfuðstól láns hjá þeim sem ekki staðfesta afstöðu sína fyrir 30. júní mun ljúka þá.

Þeir sem ekki staðfesta afstöðu sína fyrir ofangreindan tíma geta hafið ráðstöfun að nýju með nýrri umsókn á tímabilinu.

Ríkisskattstjóri sendi tölvupóst á alla þá aðila sem eru að nýta sér úrræðið og gaf þar upp síma 442 1900 og netfangið adstod@leidretting.is fyrir þá sem óska eftir frekari upplýsingum og aðstoð.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
6. október 2026

Breytt verklag við ákvörðun vaxta sjóðfélagalána

Stjórn EFÍA samþykkti á fundi sínum 4. október 2026 breytingar á verklagi við ákvörðun vaxta sjóðfélagalána. Markmið breytinganna er að gera vaxtaákvarðanir fyrirsjáanlegri og tryggja skýrari upplýsingagjöf til lántaka.

Lesa meira
6. október 2026

Breyting á vöxtum sjóðfélagalána

Stjórn EFÍA tók ákvörðun um að hækka breytilega verðtryggða vexti sjóðsins.

Lesa meira
7. júlí 2026

Breytingar á framkvæmdastjórn og stjórn EFÍA

Breytingar hafa orðið á framkvæmdastjórn og stjórn EFÍA.

Lesa meira