07.11.2017
Fræðslufundir um útgreiðslur úr lífeyrissparnaði - Reykjavík, Akureyri og Egilsstöðum
Að mörgu er að hyggja þegar kemur að útgreiðslu lífeyrissparnaðar og af því tilefni býður Arion banki til opinna fræðslufunda í Reykjavík, á Akureyri og á Egilsstöðum.
Á fundunum verður farið yfir helstu atriði sem ber að hafa í huga varðandi útgreiðslur lífeyrissparnaðar:
Reglur um útgreiðslur lífeyrissparnaðar
Skattalega meðferð lífeyrissparnaðar
Samspil útgreiðslna úr lífeyrissjóðum og Tryggingastofnun
Fundirnir standa yfir í rúmlega klukkustund og verða haldnir sem hér segir:
Reykjavík - 21. nóvember kl. 17.30 í Arion banka, Borgartúni 19
Egilsstöðum - 6. desember kl. 17 í sal Hótels Valaskjálf, Skógarlöndum 3
Akureyri - 18. janúar kl. 17.30 í aðalbyggingu Háskólans á Akureyri
Boðið verður upp á léttar kaffiveitingar.
Allir velkomnir.
Skráning á fræðslufundinn í Reykjavík 21. nóvember
Skráning á fræðslufundinn á Egilsstöðum 6. desember
Skráning á fræðslufundinn á Akureyri 18. janúar