31.08.2018

Fjármála­ráðu­neyt­ið stað­festir breyt­ingar á sam­þykkt­um EFÍA

Fjármálaráðuneytið hefur staðfest breytingar á samþykktum EFÍA sem samþykktar voru í allsherjar atkvæðagreiðslu sjóðsins sem lauk 12. júní sl. Nýjasta útgáfa samþykkta EFÍA sem tekur gildi frá og með 1. september 2018 er nú aðgengileg á vefsvæði sjóðsins.

Helstu breytingarnar á samþykktum sjóðsins snúa að svokölluðum hálfum ellilífeyri, en það er breyting sem veitir sjóðfélögum aukinn sveigjanleika í töku ellilífeyris. Með tilkomu hálfs ellilífeyris býðst sjóðfélögum að taka hálfan ellilífeyri úr sjóðnum og fresta hinum helmingnum sem hækkar í samræmi við frestunartöflur sjóðsins. Jafnframt gætu sjóðfélagar samhliða töku hálfs ellilífeyris frá lífeyrissjóði mögulega nýtt sambærilegt úrræði frá Tryggingastofnun að ákveðnum skilyrðum uppfylltum.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
6. október 2026

Breytt verklag við ákvörðun vaxta sjóðfélagalána

Stjórn EFÍA samþykkti á fundi sínum 4. október 2026 breytingar á verklagi við ákvörðun vaxta sjóðfélagalána. Markmið breytinganna er að gera vaxtaákvarðanir fyrirsjáanlegri og tryggja skýrari upplýsingagjöf til lántaka.

Lesa meira
6. október 2026

Breyting á vöxtum sjóðfélagalána

Stjórn EFÍA tók ákvörðun um að hækka breytilega verðtryggða vexti sjóðsins.

Lesa meira
7. júlí 2026

Breytingar á framkvæmdastjórn og stjórn EFÍA

Breytingar hafa orðið á framkvæmdastjórn og stjórn EFÍA.

Lesa meira