03.11.2016

EFÍA leið­réttir sjóð­félagalán sem urðu fyrir nei­kvæð­um áhrif­um vegna rangr­ar vísi­tölu neyslu­verðs

Í mars urðu Hagstofunni á mistök við útreikning á neysluverðsvísitölunni sem leiðrétt voru nú í september. Hagstofan leiðrétti aðeins septembergildi vísitölunnar en ekki eldri gildi. Hefði þessi leiðrétting ekki komið til, hefði mánaðarbreyting vísitölunnar í september verið 0,21% í stað 0,48%. Mismunurinn er 0,27 prósentustig.

Almennt hafa þessi mistök Hagstofunnar hverfandi áhrif á þá sjóðfélaga EFÍA sem eru með sjóðfélagalán hjá sjóðnum og í raun hafa þau jákvæð áhrif á sjóðfélaga með eldri verðtryggð lán. Áhrifin eru hins vegar neikvæð á ný sjóðfélagalán sem voru tekin þegar vísitalan var ekki rétt. EFÍA mun því taka tillit til leiðréttingar Hagstofunnar um sl mánaðarmót og leiðrétta vísitölubundna höfuðstólshækkun þeirra sjóðfélagalána sem tekin voru þegar vísitalan var röng en tímabilið sem þar um ræðir er frá og með apríl mánuði til október mánaðar þessa árs. Stjórn EFÍA og framkvæmdastjóri telja það sanngirnismál að sjóðfélagar, sem tóku lán á þessu tímabili, beri ekki kostnað af þessum mistökum Hagstofunnar.

Leiðréttingin mun eiga sér stað í nóvember og verða þeir sjóðfélagar sem leiðréttingin nær til upplýstir sérstaklega um hana og áhrif hennar á lán þeirra.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
6. október 2026

Breytt verklag við ákvörðun vaxta sjóðfélagalána

Stjórn EFÍA samþykkti á fundi sínum 4. október 2026 breytingar á verklagi við ákvörðun vaxta sjóðfélagalána. Markmið breytinganna er að gera vaxtaákvarðanir fyrirsjáanlegri og tryggja skýrari upplýsingagjöf til lántaka.

Lesa meira
6. október 2026

Breyting á vöxtum sjóðfélagalána

Stjórn EFÍA tók ákvörðun um að hækka breytilega verðtryggða vexti sjóðsins.

Lesa meira
7. júlí 2026

Breytingar á framkvæmdastjórn og stjórn EFÍA

Breytingar hafa orðið á framkvæmdastjórn og stjórn EFÍA.

Lesa meira