02.09.2019

Breyt­ingar á sjóð­félagalánum EFÍA

Stjórn EFÍA hefur ákveðið að lækka vexti á óverðtryggðum lánum sjóðsins sem bera fasta vextir til 3 ára úr 6,25% í 5,75%. Lækkunin tók gildi 30. ágúst sl. og gildir um ný útlán sjóðsins. Þegar veitt lán halda sínum vaxtakjörum þar til 3 ára fastvaxtatímabili þess lýkur. Sjóðfélögum er þó frjálst að endurfjármagna án lántökukostnaðar einu sinni á almanaksári. Ef endurfjármagnað er oftar en einu sinni á almanaksári þá þarf að greiða lántökugjald að upphæð nú 65.000 kr.

Stjórn EFÍA hefur einnig ákveðið að lækka vexti á verðtryggðum lánum með breytilegum vöxtum úr 2,5% í 2,1%. Lækkunin tekur gildi frá og með 1. október nk. og gildir bæði um ný og þegar veitt lán.

Samhliða þessum lækkunum ákvað stjórn að hækka hámarkslánsfjárhæð sjóðfélaga úr 40 m.kr. í 45 m.kr.

Vakin er athygli á að sjóðfélagalán EFÍA eru uppgreiðanleg hvenær sem er á lánstímanum án kostnaðar.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
6. október 2026

Breytt verklag við ákvörðun vaxta sjóðfélagalána

Stjórn EFÍA samþykkti á fundi sínum 4. október 2026 breytingar á verklagi við ákvörðun vaxta sjóðfélagalána. Markmið breytinganna er að gera vaxtaákvarðanir fyrirsjáanlegri og tryggja skýrari upplýsingagjöf til lántaka.

Lesa meira
6. október 2026

Breyting á vöxtum sjóðfélagalána

Stjórn EFÍA tók ákvörðun um að hækka breytilega verðtryggða vexti sjóðsins.

Lesa meira
7. júlí 2026

Breytingar á framkvæmdastjórn og stjórn EFÍA

Breytingar hafa orðið á framkvæmdastjórn og stjórn EFÍA.

Lesa meira