19.06.2024

Breyt­ingar á persónu­verndar­stefnu EFÍA

EFÍA er umhugað um persónuvernd og réttindi sjóðfélaga. Persónuvernd sjóðfélaga skiptir sjóðinn miklu máli og er lögð sérstök áhersla á að persónuupplýsingar séu unnar með lögmætum, sanngjörnum og gagnsæjum hætti.

EFÍA útvistar daglegum rekstri til Arion banka. Í því felst að öll vinnsla persónuupplýsinga fer fram hjá Arion banka. Í því skyni að tryggja persónuvernd og réttindi sjóðfélaga með sem bestum hætti hefur stjórn sjóðsins tekið upp persónuverndaryfirlýsingu bankans.

Þessar breytingar ættu ekki að hafa áhrif á upplifun sjóðfélaga af þjónustu sjóðsins en þeir eru þó hvattir til að kynna sér persónuverndaryfirlýsingu bankans, sjá hér. Þar kemur m.a. fram hvaða persónuupplýsingar bankinn vinnur f.h. EFÍA, hvernig slík vinnsla fer fram og hvers vegna.

Frekari upplýsingar um persónuvernd og persónuverndaryfirlýsinguna.

Engra aðgerða er þörf af hálfu sjóðfélaga en spurningar og/eða athugasemdir skal senda á persónuverndarfulltrúa bankans á netfangið personuvernd@arionbanki.is.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
6. október 2026

Breytt verklag við ákvörðun vaxta sjóðfélagalána

Stjórn EFÍA samþykkti á fundi sínum 4. október 2026 breytingar á verklagi við ákvörðun vaxta sjóðfélagalána. Markmið breytinganna er að gera vaxtaákvarðanir fyrirsjáanlegri og tryggja skýrari upplýsingagjöf til lántaka.

Lesa meira
6. október 2026

Breyting á vöxtum sjóðfélagalána

Stjórn EFÍA tók ákvörðun um að hækka breytilega verðtryggða vexti sjóðsins.

Lesa meira
7. júlí 2026

Breytingar á framkvæmdastjórn og stjórn EFÍA

Breytingar hafa orðið á framkvæmdastjórn og stjórn EFÍA.

Lesa meira