30.11.2023

Breyt­ing á vöxt­um sjóð­félagalána

Stjórn EFÍA hefur ákveðið að hækka vexti á öllum þremur lánategundum sem sjóðurinn býður upp á.

Vextir á óverðtryggðum lánum sjóðsins sem bera fasta vexti til 3 ára hækka í 9,85%. Hækkunin tekur gildi 1. desember 2023 og gildir um ný útlán sjóðsins, en þegar veitt lán halda sínum vaxtakjörum þar til þriggja ára fastvaxtatímabili lýkur.

Vextir á verðtryggðum lánum með breytilegum vöxtum hækka í 3,75% þann 1. desember 2023. Hækkunin tekur gildi 1. janúar 2024 fyrir þegar veitt lán en tilkynna þarf um breytingar á breytilegum vöxtum með eins mánaðar fyrirvara.

Vextir á verðtryggðum lánum með föstum vöxtum til 5 ára hækka í 4,3%. Hækkunin tekur gildi 1. desember 2023 og gildir um ný útlán sjóðsins, en þegar veitt lán halda sínum vaxtakjörum þar til fimm ára fastvaxtatímabili lýkur.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
6. október 2026

Breytt verklag við ákvörðun vaxta sjóðfélagalána

Stjórn EFÍA samþykkti á fundi sínum 4. október 2026 breytingar á verklagi við ákvörðun vaxta sjóðfélagalána. Markmið breytinganna er að gera vaxtaákvarðanir fyrirsjáanlegri og tryggja skýrari upplýsingagjöf til lántaka.

Lesa meira
6. október 2026

Breyting á vöxtum sjóðfélagalána

Stjórn EFÍA tók ákvörðun um að hækka breytilega verðtryggða vexti sjóðsins.

Lesa meira
7. júlí 2026

Breytingar á framkvæmdastjórn og stjórn EFÍA

Breytingar hafa orðið á framkvæmdastjórn og stjórn EFÍA.

Lesa meira