25.02.2022

Breyt­ing á vöxt­um sjóð­félagalána

Stjórn EFÍA hefur ákveðið að hækka óverðtryggða vexti sjóðsins og lækka verðtryggða breytilega vexti sjóðsins.

Vextir á óverðtryggðum lánum sjóðsins sem bera fasta vexti til 3 ára hækka úr 4,5% í 5,2%. Hækkunin tekur gildi 28. febrúar nk. og gildir um ný útlán sjóðsins, þegar veitt lán halda sínum vaxtakjörum þar til þriggja ára fastvaxtatímabili lýkur.

Vextir á verðtryggðum lánum sjóðsins með breytilegum vöxtum lækka úr 1,79% í 1,50%. Lækkunin tekur gildi 1. apríl 2022 en tilkynna þarf um lækkun breytilegra vaxta með eins mánaðar fyrirvara. Lækkunin gildir um ný og þegar veitt lán með breytilegum vöxtum sem kveða á um að vextir séu endurskoðaðir ársfjórðungslega.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
6. október 2026

Breytt verklag við ákvörðun vaxta sjóðfélagalána

Stjórn EFÍA samþykkti á fundi sínum 4. október 2026 breytingar á verklagi við ákvörðun vaxta sjóðfélagalána. Markmið breytinganna er að gera vaxtaákvarðanir fyrirsjáanlegri og tryggja skýrari upplýsingagjöf til lántaka.

Lesa meira
6. október 2026

Breyting á vöxtum sjóðfélagalána

Stjórn EFÍA tók ákvörðun um að hækka breytilega verðtryggða vexti sjóðsins.

Lesa meira
7. júlí 2026

Breytingar á framkvæmdastjórn og stjórn EFÍA

Breytingar hafa orðið á framkvæmdastjórn og stjórn EFÍA.

Lesa meira