15.01.2015

Breyt­ing á tekju­skatts­pró­sentu og persónu­afslætti ársins 2015

Frá og með 1. janúar 2015 breyttist skattþrep og persónuafsláttur einstaklinga eins og hér segir:

Staðgreiðsluprósenta tekjuskatts er reiknuð í þremur skattþrepum.

  • 37,30% af tekjum 0 – 309.140 kr.

  • 39,74% af tekjum 309.141 – 836.404 kr.

  • 46,24% af tekjum yfir 836.404 kr.

Persónuafsláttur er 50.902 kr. á mánuði og er heimilt að nýta allan (100%) ónýttan persónuafslátt maka á árinu 2015. Það er á ábyrgð hvers lífeyrisþega að tilkynna í hvaða skattþrepi tekjuskattsgreiðslur eiga að vera. Nauðsynlegt er að upplýsa sjóðinn um tekjur frá öðrum aðilum en lífeyrissjóðnum, svo greiðslur frá honum skattleggist í réttu skattþrepi.

Nánari upplýsingar um er að finna á vef ríkisskattstjóra www.rsk.is.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
6. október 2026

Breytt verklag við ákvörðun vaxta sjóðfélagalána

Stjórn EFÍA samþykkti á fundi sínum 4. október 2026 breytingar á verklagi við ákvörðun vaxta sjóðfélagalána. Markmið breytinganna er að gera vaxtaákvarðanir fyrirsjáanlegri og tryggja skýrari upplýsingagjöf til lántaka.

Lesa meira
6. október 2026

Breyting á vöxtum sjóðfélagalána

Stjórn EFÍA tók ákvörðun um að hækka breytilega verðtryggða vexti sjóðsins.

Lesa meira
7. júlí 2026

Breytingar á framkvæmdastjórn og stjórn EFÍA

Breytingar hafa orðið á framkvæmdastjórn og stjórn EFÍA.

Lesa meira