24.03.2014

Breyt­ing á lögum um út­greiðslu lífeyris

Í janúar sl. varð breyting á lögum um almannatryggingar sem hafa áhrif á umsóknir um lífeyri hjá lífeyrissjóðum. Ákvæðið felur í sér að sjóðfélagar þurfa að sækja um lífeyri fyrst hjá lífeyrissjóðum áður en þeir sækja um lífeyri hjá Tryggingastofnun. Þetta þýðir að ef sjóðfélagi í LSBÍ velur að sækja um lífeyri frá Tryggingastofnun 67 ára þá verður hann að sækja um lífeyri úr LSBÍ og öðrum sjóðum, ef við á, frá sama tíma eða fyrr.

Rökin fyrir breytingunum eru að ekki er talið réttmætt að sjóðfélagar geti fengið hærri greiðslur frá Tryggingastofnun eingöngu með því að fresta því að sæka um áunnin lífeyrisréttindi hjá lífeyrissjóðum. Kjósi sjóðfélagar aftur á móti að seinka töku lífeyris þarf það vera gagnvart báðum meginstoðum lífeyriskerfisins á sama tíma.

Staðfestingu á umsókn er hægt að fá í næsta útibúi Arion banka.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
6. október 2026

Breytt verklag við ákvörðun vaxta sjóðfélagalána

Stjórn EFÍA samþykkti á fundi sínum 4. október 2026 breytingar á verklagi við ákvörðun vaxta sjóðfélagalána. Markmið breytinganna er að gera vaxtaákvarðanir fyrirsjáanlegri og tryggja skýrari upplýsingagjöf til lántaka.

Lesa meira
6. október 2026

Breyting á vöxtum sjóðfélagalána

Stjórn EFÍA tók ákvörðun um að hækka breytilega verðtryggða vexti sjóðsins.

Lesa meira
7. júlí 2026

Breytingar á framkvæmdastjórn og stjórn EFÍA

Breytingar hafa orðið á framkvæmdastjórn og stjórn EFÍA.

Lesa meira