31.01.2019

Auka­árs­fund­ur

Eftirlaunasjóður FÍA boðar til aukaársfundar fimmtudaginn 14. febrúar 2019 kl. 12:00 í Hlíðarsmára 8, Kópavogi.

Líkt og sjóðfélagar þekkja þá hefur sjóðurinn haldið árlegan sjóðfélagafund á þessum tíma árs þar sem farið er yfir ávöxtun og eignasamsetningu sjóðsins á nýliðnu ári. Sá dagskrárliður mun standa óbreyttur en til viðbótar verður farið yfir tillögu stjórnar að samþykktabreytingum, sem í kjölfarið fara svo í allsherjarkosningu meðal sjóðfélaga.

Í tillögum til breytinga á samþykktum eru lagðar til breytingar á fyrirkomulagi í tengslum við stjórn EFÍA. Er meðal annars lögð til sú breyting, að fulltrúar FÍA í stjórn EFÍA verði kosnir af sjóðfélögum í beinni kosningu. Allar breytingatillögur snúa að stjórnarkjöri, tilhögun þess, skipun kjörnefndar og tilhögun ársfundar.

Allir sjóðfélagar eiga rétt til setu á fundinum með umræðu og tillögurétti.

Dagskrá

  1. Ávöxtun og eignasamsetning sjóðsins 2018

  2. Tillögur stjórnar til breytinga á samþykktum sjóðsins

  3. Önnur mál

Tillögur til samþykktabreytinga EFÍA á aukaársfundi 14. febrúar 2019

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
6. október 2026

Breytt verklag við ákvörðun vaxta sjóðfélagalána

Stjórn EFÍA samþykkti á fundi sínum 4. október 2026 breytingar á verklagi við ákvörðun vaxta sjóðfélagalána. Markmið breytinganna er að gera vaxtaákvarðanir fyrirsjáanlegri og tryggja skýrari upplýsingagjöf til lántaka.

Lesa meira
6. október 2026

Breyting á vöxtum sjóðfélagalána

Stjórn EFÍA tók ákvörðun um að hækka breytilega verðtryggða vexti sjóðsins.

Lesa meira
7. júlí 2026

Breytingar á framkvæmdastjórn og stjórn EFÍA

Breytingar hafa orðið á framkvæmdastjórn og stjórn EFÍA.

Lesa meira