19.04.2024
Auglýst eftir framboðum - Fulltrúar sjóðfélaga í stjórn EFÍA
Auglýst er eftir framboðum til stjórnarsetu í EFÍA kjörtímabilið 2024-2026.
Í samræmi við samþykktir sjóðsins er kosið rafrænt til stjórnar, kosning hefst á ársfundi sjóðsins þann 31. maí nk. og stendur í viku.
Samkvæmt grein 4.1 í samþykktum sjóðsins skulu sjóðfélagar nú kjósa einn aðalmann og tvo varamenn til stjórnarsetu í tvö ár. Þeir sem gefa kost á sér þurfa að uppfylla eftirfarandi:
Vera sjóðfélagar í EFÍA
Vera fjárhagslega sjálfstæðir og búa yfir nægilegri þekkingu og starfsreynslu skv. 31. gr. laga nr. 129/1997, um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, og 6. gr. reglna FME nr. 180/2013 og fullnægja að öðru leyti þeim kröfum sem gerðar eru um hæfi og hæfni stjórnarmanna skv. framangreindum lögum, reglum FME og samþykktum sjóðsins
Vera tilbúnir til að gangast undir hæfismat FME
Skila inn framboðsgögnum innan tilskilins tímafrests
Áhugasamir geta gefið kost á sér með því að senda inn framboð og fylgigögn sem listuð eru upp hér að neðan á netfangið kjorstjorn@efia.is
Frestur til að skila inn framboði er föstudagurinn 3. maí 2024.
Í tilkynningu um framboð eða fylgigögnum skal frambjóðandi a.m.k. tiltaka:
nafn, kennitölu og heimilisfang
upplýsingar um aðalstarf, önnur stjórnarstörf, menntun og reynslu
yfirlýsingu um að viðkomandi hafi kynnt sér og uppfylli hæfisskilyrði 31. gr. laga nr. 129/1997
aðrar þær upplýsingar sem frambjóðandi telur að geti nýst við að meta hæfi og hæfni hans til að gegna stjórnarstörfum
kynningarbréf fyrir sjóðfélaga með helstu upplýsingum um frambjóðandann sem birt verður á kosningavef á heimasíðu sjóðsins ásamt mynd
Þá skal jafnframt fylgja umsókn upplýsingar um hvort frambjóðandi gefi kost á sér í aðalstjórn eða varastjórn (eða bæði).
Í samræmi við 29. gr. laga 129/1997 skal tryggt að hlutfall hvors kyns sé ekki lægra en 40% meðal aðalmanna og varamanna stjórnarinnar í heild.
Viðtalsþættir vegna mats á hæfi stjórnarmanna í lífeyrissjóðum