20.04.2021
Auglýst eftir framboðum - Fulltrúar sjóðfélaga í stjórn EFÍA
Auglýst er eftir framboðum til stjórnarsetu í EFÍA kjörtímabilið 2021-2023.
Í samræmi við samþykktir sjóðsins er kosið rafrænt til stjórnar, kosning hefst á ársfundi sjóðsins sem stefnt er að í lok maí/byrjun júní og stendur í viku. Ástæða þess að ársfundur hefur ekki verið tímasettur er sú að vilji er til að freista þess að ná fundartíma þar sem unnt er að taka á móti öllum þeim sjóðfélögum sem hafa hug á að mæta. Vegna aðstæðna hefur ekki verið unnt að gefa út þá dagsetningu en það verður gert eins fljótt og mögulegt er.
Samkvæmt greinum 4.1 og 4.1 a í samþykktum sjóðsins skulu sjóðfélagar nú kjósa tvo aðalmenn og einn varamann til stjórnarsetu í tvö ár. Þeir sem gefa kost á sér þurfa að uppfylla eftirfarandi:
Vera sjóðfélagar í EFÍA.
Vera fjárhagslega sjálfstæðir og búa yfir nægilegri þekkingu og starfsreynslu skv. 31. gr. laga nr. 129/1997, um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, og 6. gr. reglna FME nr. 180/2013 og fullnægja að öðru leyti þeim kröfum sem gerðar eru um hæfi og hæfni stjórnarmanna skv. framangreindum lögum, reglum FME og samþykktum sjóðsins.
Vera tilbúnir til að gangast undir hæfismat FME.
Skila inn framboðsgögnum innan tilskilins tímafrests.
Áhugasamir geta gefið kost á sér með því að senda inn framboð og fylgigögn sem listuð eru upp hér að neðan á netfangið stjornarframbodefia@arionbanki.is.
Frestur til að skila inn framboði er 4. maí kl. 22:00.
Í tilkynningu um framboð eða fylgigögnum skal frambjóðandi a.m.k. tiltaka:
Nafn, kennitölu og heimilisfang.
Upplýsingar um aðalstarf, önnur stjórnarstörf, menntun og reynslu.
Yfirlýsingu um að viðkomandi hafi kynnt sér og uppfylli hæfisskilyrði 31. gr. laga nr. 129/1997.
Aðrar þær upplýsingar sem frambjóðandi telur að geti nýst við að meta hæfi og hæfni hans til að gegna stjórnarstörfum.
Kynningarbréf fyrir sjóðfélaga með helstu upplýsingum um frambjóðandann sem birt verður á kosningavef á heimasíðu sjóðsins ásamt mynd.
Þá skal jafnframt fylgja umsókn upplýsingar um hvort frambjóðandi gefi kost á sér í aðalstjórn eða varastjórn (eða bæði).
Í samræmi við 29. gr. laga 129/1997 skal tryggt að hlutfall hvors kyns sé ekki lægra en 40% meðal aðalmanna og varamanna stjórnarinnar í heild.