13.04.2022
Auglýst eftir framboðum - Fulltrúar sjóðfélaga í stjórn EFÍA
Auglýst er eftir framboðum til stjórnarsetu í EFÍA kjörtímabilið 2022-2024.
Í samræmi við samþykktir sjóðsins er kosið rafrænt til stjórnar, kosning hefst á ársfundi sjóðsins þann 20. maí 2022. Kosning er rafræn og stendur í viku.
Samkvæmt grein 4.1 í samþykktum sjóðsins skulu sjóðfélagar nú kjósa einn aðalmann og tvo varamenn til stjórnarsetu í tvö ár. Þeir sem gefa kost á sér þurfa að uppfylla eftirfarandi:
Vera sjóðfélagar í EFÍA.
Vera fjárhagslega sjálfstæðir og búa yfir nægilegri þekkingu og starfsreynslu skv. 31. gr. laga nr. 129/1997, um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, og 6. gr. reglna FME nr. 180/2013 og fullnægja að öðru leyti þeim kröfum sem gerðar eru um hæfi og hæfni stjórnarmanna skv. framangreindum lögum, reglum FME og samþykktum sjóðsins.
Vera tilbúnir til að gangast undir hæfismat FME.
Skila inn framboðsgögnum innan tilskilins tímafrests.
Vakin er athygli á því að vegna samsetningar stjórnar geta einungis konur boðið sig fram í sæti aðlmanns í stjórnarkjöri 2022*
Áhugasamir geta gefið kost á sér með því að senda inn framboð og fylgigögn sem listuð eru upp hér að neðan á netfangið stjornarframbodefia@arionbanki.is.
Frestur til að skila inn framboði er 29. apríl 2022 kl. 17:00.
* Í samræmi við 29. gr. laga 129/1997 skal tryggt að hlutfall hvors kyns sé ekki lægra en 40% meðal aðalmanna og varamanna.
Í tilkynningu um framboð eða fylgigögnum skal frambjóðandi a.m.k. tiltaka:
Nafn, kennitölu og heimilisfang.
Upplýsingar um aðalstarf, önnur stjórnarstörf, menntun og reynslu.
Yfirlýsingu um að viðkomandi hafi kynnt sér og uppfylli hæfisskilyrði 31. gr. laga nr. 129/1997.
Aðrar þær upplýsingar sem frambjóðandi telur að geti nýst við að meta hæfi og hæfni hans til að gegna stjórnarstörfum
Kynningarbréf fyrir sjóðfélaga með helstu upplýsingum um frambjóðandann sem birt verður á kosningavef á heimasíðu sjóðsins ásamt mynd.
Þá skal jafnframt fylgja umsókn upplýsingar um hvort frambjóðandi gefi kost á sér í aðalstjórn eða varastjórn (eða bæði).
Frekari upplýsingar veita framkvæmdastjóri sjóðsins og stjórnarformaður, snaedis.flosadottir@arionbanki.is og sturla@efia.is