11.05.2020

Árs­reikningur EFÍA 2019

Rekstrarniðurstöður EFÍA liggja nú fyrir í ársreikningi sjóðsins sem birtur er í heild sinni samhliða þessari frétt ásamt úrdrætti er sýnir megin niðurstöður hans.

Á heildina litið var árið 2019 afar gott ár í rekstri sjóðsins. Raunávöxtun á eignum lífeyrissjóðsins var 9,7% árið 2019 og meðaltal hreinnar raunávöxtunar sl fimm ár er nú 5,4%. Tryggingafræðileg úttekt var gerð á stöðu sjóðsins miðað við árslok 2019, samkvæmt útreikningum tryggingastærðfræðings er tryggingafræðileg staða sjóðsins í lok árs jákvæð um 3,9% samanborið við 1,8% árið 2018.

Ársreikningurinn ásamt tryggingafræðilegri úttekt verður kynntur á ársfundi sjóðsins sem stefnt er að í júní. Vegna aðstæðna hefur ekki verið unnt að gefa út dagsetningu ársfundar en það verður gert eins fljótt og mögulegt er.

Ársreikningur EFÍA 2019

Tryggingafræðileg úttekt 2019

* Ávöxtunartölur hafa ekki verið endurreiknaðar vegna áranna 2004 -2011 með ttt. mismunar á markaðsvirði verðbréfa og virði þeirra mv. kaupkröfu.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
6. október 2026

Breytt verklag við ákvörðun vaxta sjóðfélagalána

Stjórn EFÍA samþykkti á fundi sínum 4. október 2026 breytingar á verklagi við ákvörðun vaxta sjóðfélagalána. Markmið breytinganna er að gera vaxtaákvarðanir fyrirsjáanlegri og tryggja skýrari upplýsingagjöf til lántaka.

Lesa meira
6. október 2026

Breyting á vöxtum sjóðfélagalána

Stjórn EFÍA tók ákvörðun um að hækka breytilega verðtryggða vexti sjóðsins.

Lesa meira
7. júlí 2026

Breytingar á framkvæmdastjórn og stjórn EFÍA

Breytingar hafa orðið á framkvæmdastjórn og stjórn EFÍA.

Lesa meira