25.04.2018
Ársfundur Eftirlaunasjóðs FÍA
Ársfundur Eftirlaunasjóðs FÍA verður haldinn miðvikudaginn 9. maí kl. 20.00 í Hlíðasmára 8 í Kópavogi.
Dagskrá fundarins fer eftir samþykktum sjóðsins og 30. gr. laga nr. 129/1997 um starfsemi lífeyrissjóða.
Allir sjóðfélagar eiga rétt á fundarsetu með umræðu- og tillögurétti.
Dagskrá:
Skýrsla stjórnar
Ársreikningur kynntur
Tryggingafræðileg úttekt
Fjárfestingarstefna
Skipun stjórnar og laun stjórnarmanna
Val endurskoðenda
Tillögur stjórnar til breytinga á samþykktum sjóðsins
Önnur mál
Tillögur til ályktunar um önnur mál, sem taka á fyrir á ársfundi, þurfa að berast stjórn sjóðsins eigi síðar en viku fyrir ársfund.
Tryggingafræðilegt mat EFÍA 2017
Tillögur til samþykktabreytinga á Ársfundi 9. maí 2018