28.05.2020
Ársfundur EFÍA 2020
Ársfundur Eftirlaunasjóðs FÍA verður haldinn föstudaginn 12. júní kl. 12:00 í Hlíðasmára 8 í Kópavogi. Allir sjóðfélagar eiga rétt til setu á ársfundinum með umræðu og tillögurétti.
Vakin er sérstök athygli á stjórnarkjöri og sjóðfélagar hvattir til að kynna sér framboð og nýta sér atkvæðisrétt sinn. Rafrænt stjórnarkjör hefst í kjölfar ársfundar og verður opið í 7 daga.
Upplýsingar um framboð og tilhögun stjórnarkjörs má nálgast hér.
Dagskrá:
Skýrsla stjórnar
Ársreikningur kynntur
Tryggingafræðileg úttekt
Fjárfestingarstefna
Tillaga stjórnar til breytinga á samþykktum sjóðsins
Stjórnarkjör
Skipun stjórnarmanna sem ekki eru kjörnir á ársfundi og laun stjórnarmanna
Val endurskoðanda
Önnur mál
Tillögur stjórnar til samþykktabreytinga á ársfundi 2020