05.01.2022

Áherslur fjár­festingar­stefnu EFÍA 2022

Stjórn Eftirlaunasjóðs FÍA endurskoðar fjárfestingarstefnu sjóðsins að minnsta kosti árlega og nú hefur stjórnin undirritað nýja fjárfestingarstefnu fyrir árið 2022. Síðustu ár hefur verið lögð áhersla á að auka vægi og áhættudreifingu erlendra eigna. Í nýrri stefnu er þeirri vegferð haldið áfram en helstu breytingar eru þær að vægi erlendra eigna og hlutabréfa er aukið en á móti er dregið úr vægi skuldabréfa.

Fjárfestingarstefna

Breytingar á stefnunni í ár eru gerðar til þess að nýta þau tækifæri sem skapast í lágvaxtaumhverfi og þannig stuðla að hærri langtímaávöxtun. Fjárfestingarstefna sjóðsins er birt á vefsíðu sjóðsins en hana má nálgast hér.

Markmið um hlutfall eignaflokka í sjóðnum breytast eins og hér segir:

  • Innlend skuldabréf lækki úr 49% í 46%

  • Innlend hlutabréf hækki úr 16% í 17%

  • Erlend hlutabréf hækki úr 22% í 23%

  • Erlendar sérhæfðar fjárfestingar hækki úr 4% í 7%

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
6. október 2026

Breytt verklag við ákvörðun vaxta sjóðfélagalána

Stjórn EFÍA samþykkti á fundi sínum 4. október 2026 breytingar á verklagi við ákvörðun vaxta sjóðfélagalána. Markmið breytinganna er að gera vaxtaákvarðanir fyrirsjáanlegri og tryggja skýrari upplýsingagjöf til lántaka.

Lesa meira
6. október 2026

Breyting á vöxtum sjóðfélagalána

Stjórn EFÍA tók ákvörðun um að hækka breytilega verðtryggða vexti sjóðsins.

Lesa meira
7. júlí 2026

Breytingar á framkvæmdastjórn og stjórn EFÍA

Breytingar hafa orðið á framkvæmdastjórn og stjórn EFÍA.

Lesa meira