19.10.2020

Ábyrg­ar fjár­festingar hluti af framúrsk­ar­andi UFS ein­kunn

Aðalmarkmið að baki hugmyndafræði ábyrgra fjárfestinga er að stuðla að jákvæðum áhrifum á umhverfið, félagslega þætti og stjórnarhætti, (UFS e. ESG) draga úr áhættu og skila sjálfbærri langtímaávöxtun. EFÍA hefur ákveðið að horfa til þessara þátta í starfsemi sinni og sett var stefna í þeim efnum fyrir árið 2018 sem síðan þá hefur verið framfylgt með virkum hætti.

Eignastýring Arion banka, sem annast eignastýringu sjóðsins, hefur þróað aðferðafræði og innleitt verklag ábyrgra fjárfestinga í starfshætti sína fyrir hönd sjóðsins þar sem horft er til þriggja grunnþátta sjálfbærni; umhverfis- og félagslegra þátta og stjórnarhátta. Samhliða því er sáttmáli Sameinuðu þjóðanna um samfélagsábyrgð (e. UN Global Compact) hafður til hliðsjónar við eignastýringu EFÍA. Þessi sáttmáli tengist heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun með einum eða öðrum hætti og með því má segja að í starfsemi sjóðsins sé unnið í átt að markmiðunum.

Ánægjulegt er að greina frá því að m.a. fyrir þessa vinnu eignastýringar fyrir hönd EFÍA gaf Reitun nýverið Arion banka, í áhættumati sínu á UFS þáttum framúrskarandi einkunn. Einnig er nefnt að áhrifavald hafi verið nýtt með jákvæðum þætti með því að eignastýring hafi að auki veitt fyrirtækjum aðstoð og eftirfylgni við að standa betur að málaflokknum.

www.arionbanki.is/bankinn/fleira/frettir/frett/2020/10/13/Reitun-gefur-Arion-banka-framurskarandi-einkunn-i-UFS-ahaettumati/

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
6. október 2026

Breytt verklag við ákvörðun vaxta sjóðfélagalána

Stjórn EFÍA samþykkti á fundi sínum 4. október 2026 breytingar á verklagi við ákvörðun vaxta sjóðfélagalána. Markmið breytinganna er að gera vaxtaákvarðanir fyrirsjáanlegri og tryggja skýrari upplýsingagjöf til lántaka.

Lesa meira
6. október 2026

Breyting á vöxtum sjóðfélagalána

Stjórn EFÍA tók ákvörðun um að hækka breytilega verðtryggða vexti sjóðsins.

Lesa meira
7. júlí 2026

Breytingar á framkvæmdastjórn og stjórn EFÍA

Breytingar hafa orðið á framkvæmdastjórn og stjórn EFÍA.

Lesa meira