Betri kjör
fyrir sjóðfélaga
Sjóðfélögum EFÍA og mökum bjóðast vildarkjör hjá Arion.
Eignastýring Arion banka hefur annast rekstur og eignastýringu lífeyrissjóðsins frá 2012.
Sjóðfélögum EFÍA og mökum bjóðast vildarkjör hjá Arion.
Sjóðfélögum EFÍA býðst einstök yfirsýn yfir lífeyrissparnað sinn og lífeyrissjóðslán í Arion appinu.
Arion appið er opið öllum og því ekki nauðsynlegt að vera í bankaviðskiptum við Arion til að nýta sér kosti þess að fylgjast með lífeyrissparnaði sínum í Appinu.
Ef þú ert ekki nú þegar með Arion appið þá er afar einfalt að sækja það í gegnum snjalltæki með því að smella á hnappinn hér að neðan.
Sjóðfélagar EFÍA sem ráðstafa hluta af iðgjaldi í séreign hjá Lífeyrisauka eða Frjálsa býðst jafnframt heildstæð yfirsýn yfir séreignarsparnað sinn í appinu og geta framkvæmt allar helstu aðgerðir á einum stað.
Ársfundur EFÍA var haldin þriðjudaginn 9. maí í húsakynnum FÍA að Hlíðasmára 8 í Kópavogi.
Fundurinn var vel sóttur og góða umræður fóru þar fram. Kynningar frá ársfundi má sjá hér.
Á fundinum var farið yfir, auk hefðbundinna ársfundargagna, framboð til varastjórnar og tillögur stjórnar til samþykktabreytinga. Stjórnarkjör og samþykktabreytingar fóru að því búnu í rafræna kosningu meðal sjóðfélaga sem stóð í viku og liggja niðurstöður nú fyrir.
Davíð Smári Jóhannsson hlaut kjör til varamanns í stjórn
Samþykktabreytingar voru lagðar fram í sex tillögum og hlutu allar tillögurnar samþykki.
Við notum vafrakökur til að bæta upplifun þína á vefnum. Lestu um hvernig við notum vafrakökur og hvernig þú getur stjórnað þeim með því að smella á "Stillingar fótspora".