Skattar og skerðingarTrueFalse/?PageId=f102f605-669d-49a8-93b8-d94b8fafd163ÚtgreiðslurTrueFalse/?PageId=a411bf8c-7f3e-44f5-8258-344e8a2bfebe
Útgreiðslur

Skattar og skerðingar

Skatthlutfall staðgreiðslu - Tekjuskattur

Fullur tekjuskattur er greiddur af öllum lífeyris- og séreignargreiðslum við útgreiðslu, enda eru greiðslurnar frádráttarbærar frá skattskyldum tekjum við innborgun í sjóðinn. EFIA sér um að standa skil á staðgreiðslu til ríkisins.

Skattkort

Ef nýta á skattaafslátt til lækkunar staðgreiðslu, þarf að skila frumriti skattkorts inn með umsókn.
Heimilt er að nýta skattkort maka 100% ef um samsköttun er að ræða. Jafnframt er heimilt að nýta skattkort látins maka í allt að 9 mánuði frá andláti hans.

Tekjuskattsprósenta og persónuafsláttur ársins 2012

Staðgreiðsluprósenta tekjuskatts skiptist nú í 3 skattþrep.

  • 37,34% af tekjum 0 – 230.000 kr.
  • 40,24% af tekjum 230.001 – 704.367 kr.
  • 46,24% af tekjum yfir  kr.

Persónuafsláttur er 46.532 kr. á mánuði og skattleysismörk 125.744 kr. að teknu tilliti til 4% lögbundinna iðgjaldsgreiðslu launþega í lífeyrissjóð. Heimilt er að nýta allan (100%) ónýttan persónuafslátt maka á árinu 2012

Skattaleg meðferð

Upplýsingar um skattalega meðferð lífeyrissparnaðar er hægt að fá hjá Ríkisskattstjóra og hjá Lífeyrisþjónustu Arion banka. Hægt er að hringja í 444 7000 milli kl. 9 - 16 alla virka daga eða senda tölvupóst á netfangið lifeyristhjonusta@arionbanki.is.

Móttaka er í Aðalútibúi Arion banka, Laugavegi 120, 105 Reykjavík.

Skerðingar - Tryggingastofnun

Útgreiðslur úr samtryggingarsjóðum geta skert flestar greiðslur frá Tryggingastofnun, háð því hversu háar útgreiðslurnar og aðrar tekjur eru.

Skerðingar - Atvinnuleysisbætur

Greiðslur úr séreignarsjóðum skerða ekki atvinnuleysisbætur.

Skerðingar – Barnabætur, vaxtabætur og húsaleigubætur

Greiðslur úr lífeyris- og séreignarsjóðum geta skert rétt til barnabóta, vaxtabóta og húsaleigubóta sem nemur hækkun á tekjuskattstofni.