Sækja um útgreiðsluTrueFalse/?PageId=8a8f289a-9ebf-4c50-b21a-c74d9a184d2aÚtgreiðslurTrueFalse/?PageId=a411bf8c-7f3e-44f5-8258-344e8a2bfebe
Útgreiðslur

Sækja um útgreiðslu

  • Útgreiðslur fara fram einu sinni í mánuði, eftir á, síðasta virkan dag hvers mánaðar.  
  • Umsóknir um útgreiðslu séreignar/viðbótarlífeyrissparnaðar og ellilífeyris skulu berast Arion banka eigi síðar en 20. hvers mánaðar svo að hægt sé að greiða út síðasta virka dag sama mánaðar.
  • Afgreiðsla maka-, barna- og örorkulífeyris getur hins vegar tekið allt að 6 vikur. Greitt er inn á bankareikning á kennitölu umsækjanda.

Afgreiðsla umsóknar

Ástæðan fyrir því að stundum líða allt að 6 vikur frá því að umsókn um útgreiðslu maka-, barna- og örorkulífeyris berst, þar til útgreiðslur hefjast, eru einkum þær að tryggingafræðingur sjóðsins þarf að úrskurða um réttindi umsækjanda til lífeyris úr samtryggingarsjóði. Í tilfellum örorku þarf trúnaðarlæknir sjóðsins að yfirfara læknisvottorð og gefa út örorkumat. Loks eru réttindi hjá öðrum sjóðum könnuð. Ef umsækjandi á lífeyrisrétt í öðrum lífeyrissjóðum sem eru aðilar að Samkomulagi um samskipti lífeyrissjóða eru gögn send á viðeigandi sjóði.

Útgreiðsluumsókn og fylgigögn

Á hverri útgreiðsluumsókn fyrir sig er hægt að sjá hvaða fylgigögnum ber að skila inn samhliða umsókn.

Útgreiðsluumsókn ásamt fylgigögnum skal senda á neðangreint heimilisfang:

Lífeyrisþjónusta Arion banka 
Laugavegi 120 
105 Reykjavík

Fá ráðgjöf

Hjá Arion banka starfar öflugur hópur sérfræðinga sem veitir faglega ráðgjöf þegar kemur að útgreiðslu lífeyris og aðstoðar við útfyllingu umsókna um útgreiðslu sé þess óskað. Sérstök móttaka sjóðféalga EFÍA er í Aðalútibúi bankans að Laugavegi 120 og eru sjóðfélagar eindregið hvattir til að nýta sér þá þjónustu.