EllilífeyrirTrueFalse/?PageId=24fe20a3-f434-4fae-a698-5b45e174612eÚtgreiðslurTrueFalse/?PageId=a411bf8c-7f3e-44f5-8258-344e8a2bfebe
Útgreiðslur

Ellilífeyrir

Upphæð ellilífeyris þ.e áunnin réttindi sjóðfélaga, ákvarðast af því iðgjaldi sem greitt hefur verið til lífeyrissjóðsins hverju sinni og réttindatöflum I til IV í viðauka samþykkta sjóðsins. Ávinnsla réttinda ræðst af aldri sjóðféalga í lok þess launamánaðar sem iðgjald er greitt af til lífeyrissjóðsins.

Sjóðfélagi á aldrinum 60 til 70 ára, sem á réttindi í sjóðnum samkv. 10. grein samþykkta, á rétt á ævilöngum ellilífeyri og getur sótt um ellilífeyri frá og með 60 ára aldri.

Flýting töku ellilífeyris

Réttindi til ævilangs ellilífeyris EFÍA miðast við að taka lífeyris hefjist við 65 ára aldur. Það er þó heimilt að hefja töku lífeyris fyrr eða allt niður í 60 ára aldur. Fyrir hvern mánuð sem töku lífeyris er flýtt skerðast réttindi til ævilangs ellilífeyris samkvæmt töflu II í samþykktum.

Frestun töku ellilífeyris

Réttindi til ævilangs ellilífeyris EFÍA miðast við að taka lífeyris hefjist við 65 ára aldur. Það er þó heimilt að fresta töku ellilífeyris fram að 70 ára aldri. Fyrir hvern mánuð sem töku lífeyris er frestað fram yfir 65 ára aldur hækka réttindi til ævilangs ellilífeyris samkvæmt töflu III í samþykktum.

Sækja þarf um ellilífeyri skriflega á eyðublaðinu:  Umsókn um útgreiðslu ellilífeyris.

Umsóknir má finna á forsíðu undir flipanum Umsóknir. Jafnframt er sérstök móttaka sjóðfélaga EFÍA í Aðalútibúi bankans að Laugavegi 120 og eru sjóðfélagar hvattir til að nýta sér þá þjónustu.

Samþykktir sjóðsins má finna hér