Ráðstöfun iðgjalds til séreignarsparnaðar

Sjóðfélaga er heimilt að lækka iðgjald til samtryggingarverndar og verja þannig hluta iðgjalds til öflunar lífeyrisréttinda í séreign. Til að gera sjóðfélögum betur grein fyrir hvað felst slíkri breytingu er hér sett fram dæmi um 35 ára sjóðfélaga með 500.000 kr. í tekjur fyrir skatt.

Séreign 4% 

Við 65 ára aldur mun hann eiga kr. 12.586.955 í séreign, en hefði hann ráðstafað þessum 4% í samtryggingu þá hefðu þau skilað honum kr. 58.144 í ævilangan ellilífeyri. Til samanburðar mættti skoða það að sjóðfélagi ákveði að taka út mánaðarlega sömu upphæð og hann annars hefði fengið greitt úr samtryggingu (58.144 kr.). Þannig myndi séreignin hans endast til 93 ára aldurs, en hann hefði jafnframt val um að taka alla séreignina út við 60 ára aldur.

Séreign 8% 

Við 65 ára aldur mun hann eiga kr. 25.173.911 í séreign, en hefði hann ráðstafað þessum 8% í samtryggingu þá hefðu þau skilað honum kr. 116.288 í ævilangan ellilífeyri. Til samanburðar mættti skoða það að sjóðfélagi ákveði að taka út mánaðarlega sömu upphæð og hann annars hefði fengið greitt úr samtryggingu (116.288 kr.). Þannig myndi séreignin hans endast til 93 ára aldurs, en hann hefði jafnframt val um að taka alla séreignina út við 60 ára aldur.  

Áður en ákvörðun er tekin um ráðstöfun iðgjalds þarf að hafa eftirfarandi atriði í huga

Verði sjóðfélagi öryrki á hann rétt á að fá frjálsa séreign greidda út með jöfnum mánaðarlegum eða árlegum greiðslum. Á móti kemur að framreikningur sjóðfélaga á örorkuréttindum verður lægri hafi hann kosið að greiða hluta skylduiðgjalds í séreign.

Falli sjóðfélagi frá öðlast erfingjar sjóðfélaga rétt á að fá séreign greidda út eftir reglum erfðalaga. Til maka greiðast 2/3 af heildareign og 1/3 til barna. Hægt er að óska eftir mánaðarlegum eða árlegum greiðslum auk eingreiðslu. Á móti kemur að ævilangur makalífeyrir verður lægri hafi sjóðfélagi kosið að greiða hluta skylduiðgjalds í séreign.

Verði sjóðfélagi fyrir því að verða öryrki eða falla frá áður en hann hefur náð að safna álitlegri séreign sem kæmi til móts við lægri framreikning vegna örorku eða lægri makalífeyri þá gæti hann verið verr settur en annars. Hins vegar má benda sjóðfélögum á að flest tryggingafélög bjóða upp á tryggingar sem gætu brúað bilið.

Í þessu dæmi er miðað við réttindatöflur EFÍA og 3,5% raunávöxtun.