Úrræði vegna greiðsluerfiðleikaTrueFalse/?PageId=f0278d06-5656-4fa7-bad5-c53c241843f2LífeyrissjóðslánTrueFalse/?PageId=f61154f6-3ea3-4fb3-a715-3ecbef606bda Lífeyrissjóðslán
Úrræði vegna greiðsluerfiðleika
Vegna aðstæðna á íslenskum fjármála- og atvinnumarkaði standa mögulega einhverjir lánþegar EFÍA frammi fyrir breyttri og erfiðari fjárhagsstöðu. Sjóðurinn býður upp á ýmis úrræði vegna greiðslu lífeyrissjóðslána sinna s.s. greiðslujöfnun, frestun afborgana, fjölgun gjalddaga og lengingu lánstíma. Þeir sem óska eftir slíkum úrræðum skulu hafa samband við Aðalútibú Arion banka, Laugavegi 120.
Fjármálaráðgjöf
Mælt er með því að lánþegi fái fjármálaráðgjöf hjá sínum viðskiptabanka áður en gripið er til þessara úrræða. Með fjármálaráðgjöf fær lánþegi yfirsýn yfir stöðu fjármála sinna og aðstoð við að gera greiðsluáætlanir. Lagt er mat á það hvaða úrræði henti lánþega. Fjármálaráðgjöf hjá Arion banka er kölluð Fjármálaráðgjöf heimilanna. Óskir þú eftir fjármálaráðgjöf hjá Arion banka, þá vinsamlegast fylltu út upplýsingar á eftirfarandi síðu. Haft verður samband við þig innan 2ja daga.