LífeyrissjóðslánTrueFalse/?PageId=f61154f6-3ea3-4fb3-a715-3ecbef606bda
Lífeyrissjóðslán

Lífeyrissjóðslán

Allir sjóðfélagar sem hafa greitt iðgjöld til EFÍA geta sótt um lán hjá sjóðnum.

Lánin eru með jöfnum greiðslum eða jöfnum afborgunum, verðtryggð með breytilegum vöxtum sem í dag eru 4,5%. Vextir taka mið af meðalávöxtunarkröfu íbúðarbréfa HFF 34 síðustu þrjá almanaksmánuði að viðbættu vaxtaálagi sem stjórn ákveður, nú 0,75 prósentustig. Vextir eru endurskoðaðir fjórum sinnum á ári, þ.e 15. janúar, 15. apríl, 15. júlíog 15. október. Vextir af sjóðfélagalánum geta lægst orðið 3,75%

Fasteignaveð sem þarf að vera til tryggingar lánunum þarf að vera í eigu skuldara og getur veðsetning með umbeðnu láni verið allt að 65% af metnu markaðsverði íbúðarhúsnæðis. Veðsetning má þó aldrei vera hærri en 100% af brunabótamati. Lánin eru uppgreiðanleg hvenær sem er á lánstímanum án kostnaðar.

Sjóðfélögum er velkomið að hafa samband við Aðalútibú Arion banka að Laugavegi 120 til að fá nánari upplýsingar og aðstoð. Lánsumsóknir og önnur þjónusta við lánin svo sem skilmálabreytingar, útgáfa veðleyfa og samþykki síðari veðhafa er jafnframt afgreitt í Aðalútibúi bankans. Sjóðfélagar utan höfuðborgarsvæðisins geta leitað til útibús Arion banka í sinni heimabyggð. 

  • Hagstæð lán hjá sjóðnum til allt að 40 ára
  • 3,75% breytilegir vextir
  • Lánstími 5-40 ár
  • Ekkert lántökugjald
  • Lágmark 2 milljónir kr., hámark 40 milljónir kr.
  • Ekkert uppgreiðslugjald