SkilagreinarTrueFalse/?PageId=6703e2a2-201b-4562-b597-1be75d722cc6LaunagreiðendurTrueFalse/?PageId=1a266367-4be2-4e90-aa35-aeb371e6196d Launagreiðendur
Skilagreinar
Mikilvægi skilagreina
Skilagrein þarf að fylgja greiðslu í lífeyris- og séreignarsjóð svo að þeim sem bókar greiðsluna sé ljóst hve mikið er greitt fyrir hvern launþega, fyrir hvaða mánuð o.s.frv. Mikilvægt er að launagreiðandi sendi skilagrein fljótt til vörsluaðila svo að launþegi fái vexti á iðgjöld sín, en iðgjöld bera vexti frá og með þeim degi sem skilagrein berst.
Fjölbreyttar aðferðir við iðgjaldaskil
Launagreiðendur geta valið um ýmsar leiðir til að skila inn skilagreinum. Mælt er með notkun rafrænna skilagreina en þær má senda á nokkra vegu eins og sést hér að neðan.
Rafræn skil á vef
Ætlað launagreiðendum sem vilja nýta sér rafrænar skilagreinar en hafa hvorki launakerfi sem bjóða upp á rafræn skil né aðgang að Netbanka Arion banka. Skilagrein berst af vefnum til Lífeyrisþjónustu. Greiðslu vegna skilagreinar skal millifæra sérstaklega á reikning viðkomandi sjóðs.
Helstu kostir:
- Netbankaaðgangur eða aðgangur að sérhæfðu launakerfi er óþarfur.
Rafræn skil á vef
Rafræn skil í gegnum launakerfi
Ætlað launagreiðendum sem hafa aðgang að launakerfi sem styður þjónustuna, s.s. nýjustu útgáfu DK launakerfis, Stólpa og TOK og fleiri. Skilagrein sendist úr launakerfinu til Lífeyrisþjónustu. Greiðslu vegna skilagreinar skal millifæra sérstaklega á reikning viðkomandi sjóðs.
Helstu kostir:
- Þar sem skilagreinar eru sendar rafrænt beint úr launakerfunum skapast minni villuhætta og enginn tvíverknaður. Um er að ræða fljótlega, auðvelda og þægilega leið fyrir þá launagreiðendur sem á annað borð hafa aðgang að slíkum kerfum.
Athugið, launagreiðandi velur sér sjálfur notendanafn og lykilorð ef launakerfið biður um það.
Aðrir möguleikar í iðgjaldaskilum
- Senda má skilagreinar sem viðhengi í tölvupósti á skilagreinar@arionbanki.is
- Senda má skilagreinar í pósti til Lífeyrisþjónustu, Túngötu 3, 580 Siglufjörður
- Senda má skilagreinar með símbréfi í 460 1919
- Loks má skila skilagreinum í næsta útibú Arion banka eða senda til Lífeyrisþjónustu Arion banka, Laugavegi 120, 3 hæð, 105 Reykjavík
Í öllum tilfellum þarf að millifæra greiðslu vegna skilagreinar sérstaklega á reikning viðkomandi sjóðs. Skilagrein getur í raun verið á hvaða formi sem er, svo framarlega sem allar nauðsynlegar upplýsingar koma fram. Skilagreinaeyðublöð má nálgast hér.
Fastar mánaðarlegar greiðslur - engar skilagreinar
Þeir sem kjósa að vera með fastar mánaðarlegar greiðslur skulu ekki skila inn skilagreinum. Föst mánaðarleg greiðsla getur verið í formi beingreiðslu af bankareikningi, boðgreiðslu af greiðslukorti eða greiðsluseðils. Hentar vel fyrir sjálfstæða atvinnurekendur.
Núllskilagrein
Ef þær aðstæður koma upp að launþegi sé launalaus tímabundið, þá er mikilvægt að launagreiðandi skili inn núllskilagrein fyrir hann, svo ekki verði farið út í innheimtuaðgerðir að ástæðulausu