InnheimtaTrueFalse/?PageId=442e7257-a0fe-4b3b-84a0-2d115f1d8ed8LaunagreiðendurTrueFalse/?PageId=1a266367-4be2-4e90-aa35-aeb371e6196d
Launagreiðendur

Innheimta

RSK og Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda

  • Í október/nóvember ár hvert sendir ríkisskattstjóraembættið frá sér lista yfir kröfur til Söfnunarsjóðs lífeyrisréttinda.
  • Þessar kröfur verða til ef launagreiðandi hefur ekki staðið skil á neinum skylduiðgjöldum til viðurkennds lífeyrissjóðs fyrir launþega sína fyrir næstliðið iðgjaldaár.
  • Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda öðlast um leið forræði yfir kröfunni en hægt er að óska eftir að aðrir sjóðir, t.d. EFIA, yfirtaki slíkar kröfur af Söfnunarsjóðnum en fresturinn til þess er afar stuttur, eða u.þ.b. 1 mánuður frá fyrsta bréfi Söfnunarsjóðsins.
    Innheimtudeild Lífeyrisþjónustu veitir slíkum beiðnum viðtöku og ákvarðar um yfirtöku og frekari vinnslu.

RSK og EFÍA

  • Í október/nóvember ár hvert sendir ríkisskattstjóraembættið frá sér lista yfir kröfur til EFÍA.
  • Þessar kröfur verða til ef launagreiðandi hefur einungis staðið skil á hluta skylduiðgjalda til EFÍA fyrir launþega sína fyrir næstliðið iðgjaldaár.
  • EFÍA öðlast forræði yfir kröfunni.

Netfang og faxnúmer Innheimtudeildar

Launþegar hætta störfum

Skv. 7. gr. laga nr. 129/1997 ber launagreiðendum og sjálfstætt starfandi atvinnurekendum að tilkynna vörsluaðilum lífeyrissparnaðar ef þeir eiga ekki lengur að standa skil á lífeyrisiðgjaldi þar sem þeir hafa hætt starfsemi eða launþegar þeirra hafa látið af störfum. Hægt er að senda slíkar tilkynningar á breytingar@arionbanki.is.