Um áramótin 2011/2012 taka gildi lög sem lækka tímabundið hámarks frádra´tt frá tekjuskatti vegna viðbótarlífeyrissparnaðar ú 4% í 2%.
Lagasetninginn kallar ekki á að sjóðfélagar þurfi að breyta nugildandi samningum um viðbótarlífeyrissparnað heldur ber launagreiðanda að tryggja að framlag launafólks í viðbótarlífeyrissparnað verði ekki umfram 2%. Launagreiðandi skal jafnframt hækka iðgjaldið á ný í 4% að þremur árum liðnum nema sjóðfélagi óski eftir því að sparnaðurinn verði ekki hækkaður aftur.
Sjóðfélagar eru hvattir til að fylgjast vel með launaseðlum sínum til að tryggja að ekki verði misbrestur á framkvæmdinni. Jafnframt þurfa launagreiðendur sem standa skil á iðgjaldinu að gæta að þessum þætti við greiðslu launa eftir gildistöku laganna.
Mikilvægt að halda áfram að spara
Við þessa tímabundnu lækkun á greiðslu í viðbótarlífeyrissparnað lækka ráðstöfunartekjur við starfslok. Þrátt fyrir að heimildir til að leggja fyrir í viðbótarlífeyrissparnað hafi verið skertar er mikilvægt að spara áfram til efri áranna. Einfaldast er að halda áfram að leggja fyrir á því tímabili sem lögin gilda og til að aðstoða sjóðfélaga hefur verið útbúin reiknivél þar sem hver og einn sjóðfélagi getur séð áhrif umræddra breytinga fyrir sig.
Skoða tillögur að sparnaði og reiknivél