EFÍA kappkostar að einfalda launagreiðendum allt umstang í kring um skil á iðgjöldum.
Iðgjöld til lífeyrissjóðsins skulu vera samkvæmt kjarasamningum FÍA, nú að lágmarki 20% af launum sjóðfélaga. Sjóðfélaga er heimilt að lækka iðgjald til samtryggingarverndar og verja þannig hluta iðgjaldsins til öflunar lífeyrisréttinda í séreign. Gera þarf sérstakan samning um slíka ráðstöfun milli sjóðfélaga og EFIA.
Starfsfólk Arion banka í Aðalútibú bankans að Laugavegi 120 aðstoðar við gerð slíks samnings.